Grill hjá Claudiu og David

Í gær fórum við í heimsókn til Claudiu frænku og Davids þar sem okkur var boðið í grill að hætti þeirra. Þau eru búin að vera í ferðalagi og komu heim á laugardag. Þau tóku vel á móti okkur eins og við var að búast. David fór með okkur strákunum á golfvöllinn til Trevors sem er mágur Claudiu. Hugmyndin var að hitta hann og að Óskar gæti keypt golfsett í búðinni hjá honum. Trevor þessi rekur búðina á golfvellinum. Þarna getur Óskar látið setja saman fyrir sig golfsett sem passar honum og verður í raun sérsmíðað fyrir hann. Trevor var ekki við en það var engu að síður tekið mjög vel á móti okkur og strákunum var hleypt út á æfingabraut vallarins þar sem þeir fengu að slá nokkrar kúlur út í loftið. Það er hugsanlegt að þeir fái að spila hring á vellinum seinna þótt hann sé eingöngu fyrir fasta meðlimi. Við vorum síðan hjá þeim fram á kvöld og héldum södd og sæl heim í myrkri seinna um kvöldið.

David og Ágeir   Hugrun og Óskar

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Adam Ásgeir Óskarsson

Höfundur

Adam Ásgeir Óskarsson
Adam Ásgeir Óskarsson
Kerfistjóri í orlofi.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Draugaskip ?
  • Flottur di
  • Sæll og glaður
  • Útsýni frá gististaðnum í Jeddore
  • Charlo - Jeddore

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband