14.7.2008 | 23:14
Jeddore - Halifax
Síðasti dagurinn okkar rann upp og nú var ferðinni heitið til Halifax þar sem við ætluðum að eyða deginum í að bíða eftir fluginu heim. Dora eldaði fyrir okkur eggin í morgun og við vorum komin af stað uppúr klukkan níu. Við fylgdum strandveginum áleiðis til Halifax og byrjuðum á því að fara á flugvöllinn og komum farangrinum okkar fyrir í geymslu þar. Þar á eftir ákváðum við að koma af okkur bílnum til að hafa smá tíma til vara ef eitthvað ófyrirséð gerðist. GPSinn fór með okkur af stað og við fundum staðinn þar sem bíllinn átti að fara. Mér til mikillar undrunar gekk þar allt fyrir sig eins og það átti að gera, það var að minnsta kosti einhver náungi sem tók að sér að koma bílnum í gám og ég vonast bara til að hann komist á götur Akureyrar eftir tvær vikur eða svo.
Restina af deginum notuðum við síðan til að túrhestast um Halifax. Við byrjuðum á að ganga um hafnarsvæðið en tókum okkur svo til og gengum upp í virki, Halifax Citadel sem er á hæð efst í miðbænum. Þar hafa varnir Halifaxborgar verið alla tíð og mikla saga tengda sögu Kanada er þar að finna. Því miður voru veðurguðirnir búnir að ákveða að þeir væru búnir að gera sitt fyrir okkur að sinni og það gekk á með skúrum svo ekki var gott að vera mikið úti. Mamma sem hefur ráð undir rifi hverju dró þá upp regnkápurnar (plastpokana) sem hún hafði hirt í Niagara ferðinni og þeir voru notaðir til að koma í veg fyrir að ferðafötin yrðu gegndrepa. Við gengum um og skoðuðum nokkrar sýningar á safninu áður en við fórum aftur niður í bæinn.
Þar sem við vorum að bíða eftir að tíminn liði og við þyrftum að fara á flugvöllinn var ákveðið að skella sér í síðasta skiptið út að borða áður en farið yrði á völlinn. Fyrir valinu varð þetta fyrirtaks veitingahús sem bauð upp á allt mögulegt í kvöldmatinn. Þegar kom að því að velja sér bitana á diskinn gat ég einfaldlega ekki gert upp við mig hvort mig
langaði meira í nautasteik eða humar svo ég varð bara að fá mér hvoru tveggja. Málið er að það verður sennilega bið á að maður verði í þessari aðstöðu svo því að vera að sjá eftir hlutunum. Fyrir Benna og Hauk Jóns set ég því mynd af síðustu kvöldmáltíðinni í Kanada hér inn á síðuna.
Nú sitjum við á flugvellinum í Halifax og það er klukkutími í að við eigum að fara út að hliðinu og það var því um að gera að koma frá þessari færslu. Nú er bara eftir að koma sér út í flugvél og halda heim á leið.
Um bloggið
Adam Ásgeir Óskarsson
Tenglar
Tengdar síður
Nokkrar síður sem vert er að skoða
- Myndasíða Myndasíða
- Ásgeir Andri Adamsson Hér bloggar Ásgeir
- Óskar Helgi Adamsson Hér bloggar Óskar
- Lilý Erla Adamsdóttir Hér blogagr Lilý
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.