3.7.2008 | 02:49
Sault Ste. Marie - Sudbury
Við lögðum af stað á góðum tíma í morgun og ókum sem leið lá til Sudbury sem er mikill námuvinnslubær norðastan við Huron vatn. Borgin er um margt merkileg en er fyrst og fremst þekkt fyrir námuvinnslu sem hér fer fram. Nikkel er aðalmálmurinn sem unnin er hér. Talið er að loftsteinn hafi endur fyrir löngu lent í árekstri við jörðina á þessum stað og hann hafi verið mjög ríkur af málmum sem hafa verið grafnir hér upp í mörg ár. Málbræðslurnar hafa í gegnum tíðina haft mjög mikil áhrif á allt umhverfi borgarinnar. Skógar voru allir horfnir á stóru svæði hér í kring en nú hefur verið mikil vakning í umhverfismálum og verið er að græða allt upp sem hægt er og dregið hefur verið verulega úr allri mengun.
Hér er stórskemmtilegt vísindasafn, Science North sem við fórum að skoða og gátum gefið okkur góðan tíma til að fara í gegnum. Þar var margt mjög skemmtilegt að sjá og hlutirnir settir upp á frábæran hátt. Maður gat fiktað í öllu, skoðað jafnt með höndum og augum og haft gaman af öllu saman. Það hefði verið gaman að fara þarna með krakka og leyfa þeim að leika sér að vísindunum. Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar stóðst ég ekki mátið og prófaði að leggjast á naglarúm og fílaði mig eins og indverskur gúrú á meðan. Lagði samt ekki í að snúa mér á hliðina eða setja mig í aðrar stellingar. Það hefði geta endað með einhverjum aukagötum hér og þar.
Við komum okkur fyrir á góðu gistiheimili í smábænum Azilda rétt utan við borgina og ætlum okkur að eiga notalegt kvöld og góðan nætursvefn.
Myndir eru komnar inn á netið.
Um bloggið
Adam Ásgeir Óskarsson
Tenglar
Tengdar síður
Nokkrar síður sem vert er að skoða
- Myndasíða Myndasíða
- Ásgeir Andri Adamsson Hér bloggar Ásgeir
- Óskar Helgi Adamsson Hér bloggar Óskar
- Lilý Erla Adamsdóttir Hér blogagr Lilý
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.